banner5

Dekurpakkar

Draumurinn 16.200.-
Nýjasta andlitsmeðferð snyrtistofunnar hefst á notalegu baknuddi með heitum steinum til að losa um þreytu og stífleyka í baki. Snyrtifræðingurinn lagar andlitsmeðferðina að þinni húðgerð allt eftir því hvers hún þarfnast. Í þessari meðferð er Shiatsu punktanudd fyrir þreytt augu ásamt slakandi nuddi á andlit, herðar og höfuð. Að lokum er endað á djúpvirkum ilmolíumaska. Þessi meðhöndlun er upplifun fyrir húð og huga. 1klst. 30 mín.
Andlitsbað ársins                                                                    16.200.-                          
Þessi meðferð bar sigur af hólmi á ÍSMÓTI sem var haldið á vegum SAMTAKA IÐNAÐARINS og er hún vinsælasta meðferðin okkar! Andlitsmeðferð með heitum og köldum steinum. Hendur og fætur fá sérstaka spa meðhöndlun á meðan á andlitsbaðinu stendur. Yndisleg meðferð sem er einstaklega afslappandi. 1 klst. 30 mín.
Andlitsmeðferð í algjörum sérflokki 22.250,-
Rafræn hydradermie meðferð sem er einstök í sinni röð, sérvalin gel sem henta húðgerð hvers og eins. Að lokum yndislega gott nudd og maski. Þessum pakka fylgir handsnyrting og fótsnyrting. 3 klst.
Andlitsbað og spa á hendur 11.900,-
Andlitsbað þar sem heitir steinar eru látnir auka áhrif meðferðarinnar. Að lokum er settur maski á andlit og augu. Í þessari andlitsmeðferð fá hendurnar sérstaka spa meðhöndlun. Þessi meðferð gefur orku og er einstök upplifun. 1 klst.
Baknudd, andlitsbað og spa fyrir hendur 16.200,-
Slakandi nudd á bak með heitum olíum, andlitsmeðferð með sérvöldum ilmolíum. Upplifðu ilmkjarnaolíumeðferðina á snyrtistofunni. Hún er tileinkuð húð þinni og er með sérhæfða virkni eftir ástæðum hverju sinni. 1 klst. 30 mín.
Andlitsnudd, maski, handsnyrting og fótsnyrting 18.200,-
Andlitsmeðferð þar sem áhersla er lögð á einstaklega þægilegt nudd á axlir, andlit og höfuð. Í meðferðinni er valinn andlitsmaski eftir því sem við á. Hefðbundin fót- og handsnyrting er með í þessari dekurmeðferð. Sérlega þægilegur dekurpakki sem við mælum með. 2 klst. 45 mín. 
Andlitsmeðferð, handsnyrting og litun 16.650,-
Sérlega notaleg andlitsmeðferð þar sem áhersla er lögð á nudd á herðar, andlit og höfuð. Í lokin er valinn kokteil maski sem hentar þinni húðgerð. Litun á bæði augnhár og augabrúnir ásamt handsnyrtingu er innifalið í þessum pakka. 2 klst. 15 mín.