Maskarinn verður óþarfur því útlitið er eins og þegar maskari hefur verið borinn á. Það er hins vegar hægt að nota maskara ef viðkomandi vill. Hægt er að hafa augnhárin eins lengi og viðkomandi kýs, eina sem þarf að gera er að koma á 4-6 vikna fresti og láta yfirfara augnhárin. Það sést ekkert að þetta séu gerviaugnhár því hárin eru límd alveg við augnlokið og eins og myndin hér að ofan ber með sér er munurinn mikill. Þetta hentar öllum gerður og stærðum af náttúrulegum augnhárum því hægt er að setja misjafnlega löng og þykk hár eftir því sem viðkomandi vill. Það er bæði hægt að gera þetta í eitt skipti, fyrir brúðkaup, árshátíð eða þegar eitthvað mikið stendur til eða hafa þau á árið um kring. Öll efnin sem við notum koma frá Lash perfect og eru þau ofnæmisprófuð og í hæsta gæðaflokki.