banner6
Snyrtistofan Ágústa
Hafnarstræti 5
105 Reykjavík
Sími: 552 9070
Netfang: agusta@snyrtistofanagusta.is

Opnunartímar:
Allir virkir daga: kl. 9 - 18
(nema fimmtudaga)
Fimmtudagar: kl. 9 - 19
Laugardagar: kl. 10 - 14
(eða eftir pöntunum)

Snyrtistofa ársins

ÍSMÓT - Íslandsmeistaramót hársnyrta, snyrtifræðinga, gullsmiða, klæðskera og ljósmyndara innan Samtaka iðnaðarins var haldin fyrstu helgina í september 2007. Keppt var í ýmsum flokkum innan hverrar greinar. Snyrtifræðingar kepptu í andlitsmeðferð, litun og plokkun og handsnyrtingu með lökkun. Þeir kepptu einnig um titilinn Snyrtistofa ársins og var hún valin af sérstakri dómnefnd sem samtök iðnaðarins skipaði valinkunnum aðilum úr atvinnulífinu.

Ágústa Kristjánsdóttir, eigandi stofunnar, vann í keppninni Snyrtifræðingur ársins en þar var keppt í þremur greinum og samanlegt skor gaf titilinn snyrtifræðingur ársins.

Ágústa skoraði hæst í Andlitsbaði ársins og sigraði í þeim flokki og var tilnefnd í hinum tveimur sem var handsnyrting með lökkun, litun og plokkun.